Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1381, 121. löggjafarþing 613. mál: aðgangur að sjúkraskrám o.fl..
Lög nr. 76 28. maí 1997.
I. KAFLI
Breyting á læknalögum, nr. 53/1988, sbr. lög nr. 50/1990 og lög nr. 50/1996.
Um skyldu læknis og annarra sem færa sjúkraskrá til þess að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit skrárinnar, í heild eða að hluta, fer eftir ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
II. KAFLI
Breyting á lögum um skáningu og meðferð persónuupplýsinga, nr. 121/1989.
Um skyldu læknis og annarra sem færa sjúkraskrá til þess að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit skrárinnar, í heild eða að hluta, fer eftir ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
III. KAFLI
Breyting á upplýsingalögum, nr. 50/1996.
Um aðgang sjúklings að upplýsingum úr sjúkraskrá fer eftir ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
IV. KAFLI
Gildistaka.
Þingskjal 1381, 121. löggjafarþing 613. mál: aðgangur að sjúkraskrám o.fl..
Lög nr. 76 28. maí 1997.
Lög um breytingu lagaákvæða um aðgang að sjúkraskrám o.fl.
1. gr.
16. gr. laganna orðast svo:Um skyldu læknis og annarra sem færa sjúkraskrá til þess að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit skrárinnar, í heild eða að hluta, fer eftir ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
2. gr.
Við 1. mgr. 1. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Jafnframt taka lögin til skýrslna sálfræðinga og félagsráðgjafa hvort sem þær teljast skrár í skilningi 2. mgr. eða ekki.3. gr.
10. gr. laganna orðast svo:Um skyldu læknis og annarra sem færa sjúkraskrá til þess að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit skrárinnar, í heild eða að hluta, fer eftir ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
4. gr.
2.–4. málsl. 2. mgr. 8. gr. laganna falla brott.5. gr.
4. mgr. 9. gr. laganna orðast svo:Um aðgang sjúklings að upplýsingum úr sjúkraskrá fer eftir ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1997.Samþykkt á Alþingi 17. maí 1997.